Nýjustu tölur úr Mávahlíðinni
Klemma fór í sínu síðustu skoðun á spítalanum í dag og fékk góða umsögn. Hörður læknir var ánægður með þyngdaraukninguna síðastliðinn mánuð. Hún er núna komin alfarið inn í þetta venjulega kerfi sem önnur ungabörn eru í. Við megum fara með hana í heimsóknir og fara með hana inn í stöku búðir og þess háttar. Og svo eru það nýjustu tölurnar fyrir dygga lesendur:
Þyngd 3930 gr.
Lengd 53,5 cm.
Ummál höfuðs er óbreytt frá síðustu mælingu, 38,5 cm.
Við erum að skoða að skíra dömuna þann 18. mars. Tilkynnum um endanlega ákvörðun í tíma.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home