Af baði og busli
Jæja Hjördís er búinn að vera svo dugleg að setja inn færslur að ég verð að fara bretta upp ermarnar, reyndar er ég í bol. Bríet litla er alsátt við nafnið sitt eins og flest allir sem hafa fengið að heyra það. Vinnufélagar mínir voru alveg í skýjunum með þetta og sögðu þetta mikið og glæsilegt nafn.
Af Bríeti er það helst að frétta að hún er alltaf að taka upp á einhverju nýju, núna finnst mér hún vera orðin annsi handaviss og á ég stundum í erfiðleikum með grautargjöfina sem sem virðist vera skemmtilegri fyrr á daginn. Hún er farinn að boxa skeiðina upp loft og ég þarf orðið meira en einn putta til að halda þessari annars sterku hendi frá. Svo er hún farinn að sjá við mér með því að setja svolítið af grautnum út aftur og reynir þar með að rugla mig meðan hún setur hendina í skeiðina eða ruglar í grautarskálinni. Ég sit eftir og skil ekki neitt.
Baðið er að verða það alskemtilegasta og verður það að teljast til breytingar þar sem ég var farinn að heyra umgang í húsinu og bíla fara í gang þegar að baðtíma kom þar sem hún átti það til að reyna gera okkur heyrnarlausa, það er reyndar erfitt þar sem við deyfðum heyrnina okkar á dansstöðum bæjarins í gamla daga. Núna er það alltaf nuddið sem er nett gaman hjá henni og hún brosir og nýtur sín í botn. Svo er farið í baðið og þar er hún líka farinn að njóta sín vel og masterar þetta alltaf meira og meira. Hún verður smá fúl þegar maður tekur hana upp úr en það hefur hún ekki langt að sækja þar sem mamma hennar vildi aldrei sjálf fara úr baðinu og reyndi öll trikk í bókinni til að vera sem lengst þar.
Bríet er nálægt því að geta gripið í dót sem hangir á slá fyrir ofan hana þegar hún liggur á teppi á gólfinu. Þetta er því allt að koma og ekki líður á löngu þangað til að hún fer að taka fjarstýringuna og stilla á Cartoon network.
Bríet er að taka baðið sitt vel fyrir átta og svo er farið í massíva mjólkurdrykkju til að geta malað sem lengst þangað til að nauðsyn er að láta í sér heyra svo að mamma og pabbi komi og fylli á svelginn.
Í dag settist hún í fyrsta skipti í nýja stólinn sinn og virtist líka vel, kannski af því að pabbi valdi ekki cover á hann heldur mamma. Það verður gaman að hópast saman í eldhúsinu og elta grauta upp eftir öllum veggjum þegar að því kemur. Það verður að segjast að þó Bríet geti látið í sér heyra þá er hún líka afar brosmild og tekur stundum upp á því að fá málæðiskast og snýr það oftast að blómum eða einhverju þvíumlíku. Ég verð að reyna vera duglegur að vökva þessi blóm því þau eru svo mikill partur að tilveru Bríetar núna, ég yrði sennilega rekinn ef blómin tækju upp á því að deyja einn daginn.
Bríet er greinilega farin að gera greinarmun á foreldrum sínum og öðrum þ.e að taka okkur framyfir aðra. Hún er farin að smakka á flestu sem hún kemst í eins og peysunum sínum og þessháttar. Hún er farinn að vera rosalega örugg á höfðinu sínu og heldur því vel en stundum verður hún eins og veikur fugl sem vaggar bara í sífellu.
Við erum að prufa þurrmjólk núna og Bríet er ekki alveg að samþykkja það og má nefna að ég var að fara leggja hana til svefns áðan og hún ældi allri gjöfinni aftur og stóð bunan meter upp í loft og þurfti ég að skipta um föt á henni meðan að mamma hennar setti nýtt á rúmið hennar. Síðan var byrjað aftur að gefa henni og nú liggur hún sofandi inn í rúmi. Svona er þetta bara og verður maður að hlæja að þessu smá vandamáli annað er ekki sanngjarnt.
Eflaust er ég að gleyma einhverju sem þessi snillingur er að uppgötva þessa daga en það kemur bara í næsta pistli.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home