Veröld Bríetar

26 júlí 2006

Örfréttir


Það er allt gott að frétta af okkur og allt gengur vel. Það hefur ekki verið mikill tími til að blogga þar sem kvöldin hafa farið í vinnu hjá Hjördísi og ég asnaðist til að byrja mála þvottaherbergið. Það er því mikið búið að ganga á og Bríet er orðin vön því að spjalla við strákana í Flugger búðinni og þekkir rekkakerfið í Húsasmiðjunni nokkuð vel, hún fór meira segja inn á lager hjá Sindra stál í dag og endaði svo í Blikksmiðju Reykjavíkur. Það er því mikið að gera hjá okkur þó svo að hún hafi ekki gripið í pensil ennþá. Það er samt bara málað þegar að hún er farin að sofa. Bríet er að fá tvær tennur í neðri gómin, það er aðeins farið að glitta í þær, það verður gaman að sjá hvernig hún breytist við það. Við erum búinn að vera dugleg að heimsækja og það er alltaf eitthvað í gangi hjá okkur. Við erum loksins búinn að fá okkur fínan heimasíma og það tók bara tæplega tvö ár, svo er svona hitt og þetta sem við erum með í vinnslu í ferðum okkar um borgina. Kaffitár hefur enn sem komið er vinninginn í Lattekeppninni sem ég setti á koppinn.
Nágranni minn hló þegar hann sá skeggvöxt minn í dag og spurði hvað væri í gangi, ég sagðist vera í fæðingarorlofi og þyrfti ekki að raka mig, hann hló enn meira. Málið er það að ég bíð í ofvæni eftir að Bríet geti gripið í skeggið og haldið fast í það, það er ekkert hár á höfðinu sem hún getur fiktað í. Hún er vön að grípa aðeins í hárið á mömmu sinni og toga það allt til. Svona er þetta allt saman núna og við bíðum bara eftir því að Hjördís komist í smá frí þannig að við getum farið eitthvað út á land.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home