Veröld Bríetar

27 september 2006

Bríet er tíu mánaða



Bríet varð tíu mánaða þann 24 sept.. það er allt svo gott að frétta af okkur og mikið búið að vera gera síðustu daga. Það eru skoðanir hjá lækni og fleira. Bríet er búin að léttast aðeins samkvæmt kúrfunni sinni en núna er það að komast í lag. Hún á það til að vera svolítið löt að borða eins og flestir vita kannski en vonandi fer hún að taka hraustlega til matar síns bráðlega. Við erum dugleg að fara í Hreyfiland og einnig ætlum við að drífa okkur á opið hús í kirkjunni þar sem foreldrar koma með börnin sín og spjalla saman. Það sem er alltaf skemmtilegast núna er að hitta annað fólk og Bríet hefur endalaust gaman að því að vera annarsstaðar en heima hjá sér og sjá nýja hluti. Veit ekki hvort að klukkutímalangur fundur pabba hennar og ráðgjafa hjá KB Banka í morgun hafi slegið í gegn en hún var nokkuð brött allan tímann. Ég fór með hana upp á leikvöll í hverfinu um daginn og hún skríkti bara þegar hún sá alla krakkana leika sér. Ég veit það fyrir víst að ég verð að fá mér góða hlaupaskó þegar að Bríet stendur upp og hleypur af stað. Bríet brosti mikið þegar hún sá glefsur af Miss World á skjánum áðan og hún hefur sennilega haldið að stelpurnar væru allar að brosa svona mikið til sín en samt held ég að ekkert toppi fréttastefið á NFS sem hún elskar meira en allt annað í sjónvarpinu þessa daganna. Höfum ekki fundið stuðboltastelpurnar í nokkra daga en það kemur. En allavega allt á pari hjá okkur og ég er glaður að Bríet brosi mikið og virðist vera sátt við daglega rútínu pabba sinns, það skilar manni ágætiseinkunn í hjartað...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home