Smá fréttaskot
Það hefur mikið verið að gerast hjá Bríeti um jólin og hérna er hún í fanginu á Halli í jólaboði sem var haldið hjá Ragnari í dag þar sem að mikið fjör var og einnig var hundur á staðnum sem skemmti Bríeti...
Þessi mynd sýnir þegar að Bríet var farin að teigja sig í gjafirnar, hún gat ekki beðið eftir að breyta þessu skipulagi sem komið var á pakkana í horninu á stofunni....
Hérna er svo dúllan að skemmta okkur í eldhúsinu, hún er búin að vera hálf veik í 2 vikur og virðist ekki alveg vera að ráða við þetta lyfjalaust. Hún er þó ekki með eins mikinn hita núna eins og um daginn en það er alltaf smá lumbra í henni og hún er nú vel kvefuð með hor. Vonandi lagast þetta fljótt en hún var í nokkra daga í aðlögun hjá dagmömmu og svo byrjar alvaran eftir áramót þar sem hún verður frá morgni til klukkan fjögur þegar við pikkum hana upp. Þetta hefur reynt aðeins á foreldrana og hana líka en dagmömmurnar segja að þetta verði orðið gott um miðjan janúar, við vonum að það sé rétt hjá þeim.... Það er rosalega skrýtið að vera fara vinna eftir að hafa séð um þetta krútt í 6 mánuði en svona er þetta bara, maður hlýtur að venjast því að vera ekki með hana allan daginn en þegar að næsta barn kemur þá skal ég taka lengra frí þar sem þetta er búið alltof of fljótt...Það er semsagt mikið sem er að gerast hjá litlu fjölskyldunni en þetta er líka rosalega spennandi allt saman þó svo að ekki sé skemmtilegt að heyra hana hósta og hósta upp úr svefni og vita að hún er ekki að fá nógu góða hvíld til að takast á við allar þessar breytingar. Ég og Hjördís skiluðum henni af okkur fyrir helgi til dagmömmunnar og Bríet fór að grenja þegar við komum með hana og svo var hún grenjandi þegar við sóttum hana, þetta er nóg til að fá mann til að hugsa hvort maður eigi að hætta að vinna :) við erum ekki fyrstu foreldrar sem lenda í þessu en þetta er bara svo erfitt... svo hlær maður að þessu seinna...
Nú eru áramótin á morgun og það er magnað að vita til þess að nú er rétt um eitt ár síðan Bríet kom heim til sín af vökudeildinni og hún fékk þetta bloggsvæði einmitt í janúar í fyrra þannig að heimildir um þetta ævintýri eru vissulega til staðar.
Bríet biður að heilsa og hún er nú steinsofandi en hún hélt fyrirlestur áðan fyrir félaga sína inní herbergi þar sem hún lýsti veislunni skemmtilegu sem hún var í áðan, svo sagði hún mamma, mamma, mamma sem er uppáhaldsorðið þessa daganna... svo sofnaði hún kellingin og hefur ekki einu sinni vaknað við sprengjuárásina sem er fyrir utan gluggann hennar núnar þar sem fólk er að svala flugeldaástríðu sinni sólarhringi of snemma....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home