Búningar og bollur.....
Um daginn kom Tómas frændi í heimsókn og lék mikið við Bríeti. Það fór vel á með þeim að venju og Bríet var endalaust hamingjusöm með þetta. Þetta endaði í pizzu og ís, mátti ekki minna vera.Annars benti ég Bríeti á mynd af Tómasi vera að gúffa í sig bollu í blaðinu og spurði hana hver þetta væri. Það stóð ekki á svari ... "Bríet " sagði hún... alveg sama hvað ég spurði oft ...
Hér er svo Bríet búin að fara í bað og er að gera sig klára í svefninn klukkan átta eins og venjulega. Hún er búin að standa sig vel síðustu daga og það var aldeilis gott að við gátum strax gripið inn í streptókokkasýkinguna, hún fjaraði bara út í sýklalyfjapolli, annars er búið að leka aðeins úr vinstra eyra en læknirinn lét okkur hafa dropa við því og það virðist hafa snarminnkað.
Hérna er verið að undirbúa öskudaginn. Það dugar ekkert minna en að bregða sér í hlutverk Mínu. Þetta sló algjörlega í gegn hérna í gær og Bríet dansaði í búningnum og sló á létta strengi.. Það kemur svo mynd af búningnum í heild á öskudaginn.....
Svo þurfti líka að æfa bolludaginn, það er ekki hægt nema að borða bollur. Þetta virtist ekki fara illa í litlu og verður þetta sennilega á borðum næstu daga....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home