Veröld Bríetar

27 júlí 2008

Bríet í sumarfríi 2008

Hérna er Bríet í Portúgal í sumarfríinu en við vorum þarna í þrjár vikur. Bríet hafði mjög gaman af þessu og hún naut þess að leika sér á hótelinu þar sem ýmislegt var hægt að gera eins og að vera í sundi, fótbolta, tennis, golfi og einnig var krakkaklúbbur þarna sem hún hafði gaman af að líta í...







Hérna er dúllan klár í að fara út að borða, það var einn reglulega góður veitingastaður í þriggja mínútna labbifæri frá hótelinu sem Bríet hafði mjög gaman af að heimsækja..
















Hérna er svo fjölskyldan að skoða virki en við´leigðum bíl með Guggu, Halli, Margréti og Krístínu og keyrðum á nokkra staði í Portúgal. Það var mjög gaman og Bríet stóð sig eins og hetja í þessum bíltúr sem tók allan daginn...









Hérna er verið að bíða eftir að fá matinn á borðið.
Hún gat hlaupið endalaust um þennan veitingastað og þjónarnir höfðu gaman af henni,,












Hérna er Bríet svo í essinu sínu, komin í sundlaugina á hótelinu. Hún gat hlaupið í kringum barnalaugina í langan tíma og gólað og hoppað af kátínu, þetta var alveg svakalegt fjör fyrir hana....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home