Veröld Bríetar

11 febrúar 2006

Vaknað á laugardegi















Nóttin gekk vel hjá okkur tveimur þar sem mamma fékk að hvíla sig smá í stofunni. Það voru drukknir tveir pelar en lítið sem ekkert spjallað þar sem það er bannað á nóttinni. Við fengum svo mömmu inn til okkar um klukkan 9 og þá var rosalegt fjör. Pabbi kveikti öll ljós klukkan rúmlega 8 og setti á mig nýja bleyju og þvoði mér í framan eins og venja er á þessum tíma. Við hlustuðum á Johnny Cash og höfðum það gott. Eins og sést á fötunum mínum þá fór ég úr svefngallanum í peysu og buxur sökum þess að maður er ekki í náttfötum á daginn. Ég ræddi lengi við kanínuna mína og sagði henni hvað mig hafði dreymt í nótt. Nú ligg ég og japla á snuðinu mínu meðan pabbi slær á eitthvað sem liggur á borðinu, hvernig nennur hann að sinna tækinu á borðinu en ekki mér, samt allt í lagi því að ég er að hlusta á Sigur Rós núna þannig að ég uni mér vel, svigaplatan er besta platan þeirra.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home