Hitt og þetta
Það er yndisleg nýjung þessi gestabók og gaman hvað fólkið okkar er duglegt að skrifa í hana. Bríet fór í skoðun til ljósunnar í dag og fékk góða einkunn. Hún er að þyngjast vel og er orðin 5240 g og 60 cm. Það er nú ekkert smá að vera 60 cm prinsessa og þyngri en léttasta handlóðið á heimilinu. Bríet hefur verið svo skemmtilega sniðug og góð upp á síðkastið. Hún fékk hláturskast í ömmustólnum þegar að pabbi dansaði með stólinn á lofti un þéttum tónum White Stripes um helgina. Ég hló svo mikið að smá stund þurfti ég til að jafna mig á eftir. Hún er mjög dugleg að dunda sér sjálf og virðist geta gleymt sér við að horfa út í loftið. Hún er búin að eignast nýjan félaga sem er múmín álfa snáði sem er í rúminu hennar, þau ferðast sennilega saman í draumalandinu. Bríet fær alltaf nudd klukkan 19:15 og fer síðan í bað á eftir. Þessi tími er alveg rosalega skemmtilegur þar sem hún virðist fíla þetta í botn. Svo er það drykkurinn á eftir og háttað klukkan átta.
Það er skrýtið fyrir okkur að hún sé farinn að sofa svona snemma, við getum nýtt tímann í að ganga frá hinu og líka að sitja í sófanum og tala um þennan litla snilling sem við eigum.
Bríet er alltaf að verða vissari á höndunum og einnig er hún oft að babla aðeins við mann. Það sem ég hef svo gaman að núna er að koma heim og taka hana inn úr vagninum, hún er svo krúttleg þegar hún vaknar af blundinum sínum.
Mér finnst eins og ég hafi skrifað þetta allt saman áður en það verður þá að hafa það. Þetta er bara svo gaman allt saman.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home