SOS!
Hjááálllppppp! Ef einhver veit um ábyrga og barngóða dagmömmu, sem getur passað Bríeti frá 9-4, frá og með 1. janúar 2007, er sá snillingur beðinn um hafa samband við okkur. Fyrsti dagurinn í símhringingum til dagmæðra hefur gert mig ansi svartsýna. Einhvern tímann var planið að ganga frá dagmömmuplássi á meðgöngunni. Svo fór allt af stað og þessi góðu plön gleymdust í öllu amstrinu. Helst hefði þetta nú átt að vera þannig að við gætum heimsótt dagmömmur, rætt við þær og skoðað aðstæður, en nei, við verðum heppin ef við fáum pláss og megum þá þakka fyrir það sem býðst. Ekki góð tilhugsun þegar um litla barnið manns ræðir...
Hins vegar erum við búin að sækja um leikskóla, Hamraborg. Og svo er snúllan á biðlista í Sælukoti frá ágúst 2007...

5 Comments:
Birta var hjá Guðrúnu Óskarsdóttur, Kleppsvegi 2. Held hún sé enn dagmamma, er æðisleg og með allt á hreinu, finnið hana í skránni:) kv. DJ
Hún er búin að fylla fyrir haustið, því miður. Ég get prófað að hringja í hana í nóv/des til að athuga hvort eitthvað barn er að fara frá henni inn á leikskóla um áramótin, en flestar segja mér að börnin fari ekki fyrr en á haustin. Úff. HH
Hæhæ Maggi og Hjördís og til hamingju með litla krúttið ykkar :) Mamma og Maggi sögðu mér frá bloggsíðunni ykkar og ég ákvað að kíkja. Flott heimasíða! Við erum nú bara hjá Barnaland.is með litla snúllann okkar sem er orðinn 6 mánaða. Ég sá að þið eruð í vandræðum með dagmömmudæmið. Við höfum ákveðið að taka ekki sjensinn með dagmömmur þar sem hlutfall "slæmra dagmæðra" er þvímiður hærra en góðu hófi gegnir og við ákváðum að reyna ekki að leita að þessum góðu. Þannig að við ákváðum að sækja um í einkareknum leikskólum. Erum búin að sækja um í Regnboganum, Fossakoti, Korpukoti og Vinagerði og það lítur bara vel út með biðlista. Þessir leikskólar (sérstaklega Fossakot og Korpukot) sérhæfa sig í litlu börnunum. Ég fór og skoðaði hjá þeim og leist svakalega vel á! Þessir leikskólar eru aðeins dýrari en dagmamman og eru niðurgreiddir af RVK eftir 18 mánaða aldur (http://leikskolar.is/displayer.asp?cat_id=22). En í þeim er auðvitað mun meira eftirlit heldur en hjá dagmömmum. Vildi bara benda ykkur á þetta. Þið vitið þetta kannski alveg fyrir :)
Bestu kveðjur!
Maja (dóttir Kristjönu)
Takk fyrir kærlega Maja! Og til hamingju með þinn snáða. Megum við sjá barnalandssíðuna?
Ég ætla strax að tékka á einkaleikskólunum. Sé að Vinagerði er á heppilegum stað fyrir okkur. Dagmömmurnar sem ég hef talað við hafa allar fyllt frá og með haustinu og segja að dagmömmur vilji almennt bara taka inn börnin á haustin. Það þýðir að við þurfum að bíða til nóv/des til að vita hvort eitthvað pláss losnar hjá þeim um áramót. Ekki góð staða.
Það var nú lítið! Gott að þetta hjálpaði eitthvað. Ég fór og skoðaði í Vinagerði og það er reyndar einn galli við þann skóla og það er að yngsta barnið þar er 1 1/2 árs. Þeir virðast ekki sérhæfa sig í yngstu hópunum eins og Fossakot og Korpukot gera (þeir taka inn börn allt niður í 6 mánaða og eru með góða aðstöðu fyrir þau). Já það er einmitt þetta með staðsetningarnar. Maður sér fram á að þurfa að keyra aðeins. Svo getur maður reyndar fært þau yfir í almennu leikskólana í sínu hverfi þegar þau komast á þann aldur (ef einkarekni leikskólinn er með þjónustusamning við Reykjavíkurborg). Já endilega kíkið á heimasíðuna okkar á Barnaland.is. Hún er læst og eingöngu fyrir fjölskylduna og nánustu vini. Ég skal senda ykkur lykilorðið á emailið ykkar. Eruð þið með eitthvað email sem ég má senda á?
Kveðja, Maja.
Skrifa ummæli
<< Home