Veröld Bríetar

12 apríl 2006

Litli Belgur

Bríet Magnúsdóttir hefur verið að hafna mjólkinni sinni og er í verkfalli. Hvernig getur svona lítil prinsessa verið svona þver. Hún hefur fengið viðurnefnið prinsessa litli belgur þessa vikuna. Ég spyr, hvar er takkinn sem maður ýtir á til að fá börnin til að ropa, hef ekki ennþá fundið staf um þetta málefni þar sem hún neitar stundum að ropa og heldur svo að hún sé södd eftir smá drykkju. Vonandi lagast þetta allt saman fljótlega svo að hún verði ekki eingöngu grautarputti sem vill ekki mjólk.
Annars gengur lífið vel og gaman hvað margir eru búnir að koma í heimsókn síðustu daga, alltaf eitthvað að gerast.
Með von um að allir eigi gleðilega páska og allir verði duglegir að drekka mjólk...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home