Sendingin
Áðan var dinglað og úti stóð náungi frá póstinum. Hann sagðist vera sendingu til Bríetar Magnúsdóttur og spurði mig hvort hún ætti heima hér. Ég var ekki lengi að segja já og taka við pakkanum. Þetta er í fyrsta skipti sem einhver dinglar og spyr eftir henni, rosalega gaman. Svo þegar ég fór að skoða pakkann þá sá ég að þetta var frá Hr. JB Salenger, einkavini Bríetar í Bandaríkjunum. Þau eru saman í lönguaugnháraklúbbnum. Hann var að senda henni sólhatt og kjól svo hún verði með allt á hreinu á Lanzarote í sumar. Hún verður sennilega himinlifandi þegar hún sér þetta í fyrramálið.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home