Veröld Bríetar

09 maí 2006

Litli belgur

Jæja, við erum að verða búin með eitt stykki sundnámskeið og ekki er ungfrúin búin að fara í kaf ennþá. Enda með uppsteit við kennarann í hverjum tíma. Í öðrum tíma vorum við mæðgurnar reknar upp úr vegna óláta (í Bríeti ekki mér!), en nú er þetta allt að koma. Kennarinn fékk alla vega að halda á dömunni í síðustu tveimur tímum, og er það mikil framför frá því að mega ekki horfa í áttina til hennar, hvað þá tala til hennar. Allir hinir krakkarnir eru búnir að fara í kaf en kennarinn segir að Bríet fari ekki í kaf fyrr en hún er orðin 100% sátt við þetta allt saman.

Þá er ungfrúin farin að vera með mikil belgslæti við ókunnugt og jafnvel henni vel kunnugt fólk. Byrjaði allt í einu á því föstudag einn í apríl. Hefur síðan öskrað á flesta sem koma nálægt henni (fyrir utan foreldrana auðvitað) nema einn og einn sem hún ákveður að brosa til allan hringinn. Í dag hringdi til mín maður og bað mig um að vinna verk fyrir sig, og bauðst til að passa Bríeti á meðan. Við verðum á Lanzarote þennan tíma sem maðurinn hafði í huga, og ég þurfti því ekki að útskýra fyrir honum að Bríet myndi sennilega taka sig til og leggja hann í götuna, svo sem með því að sprengja í honum hljóðhimnurnar. Best að ég taki það fram í lokin að hún er annars afskaplega glaðlynt barn - hamingjusamur ólátabelgur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home