Veröld Bríetar

12 maí 2006

Mallakútsfréttir

Væntanlega er fólk með á nótunum um lystarleysi Bríetar síðustu mánuði, og hversu mikið hún ældi, í tíma og ótíma. Hún var loksins send til sérfræðings í seinni part apríl, nánar tiltekið Lúthers Sigurðssonar, sérfræðings í meltingarsjúkdómum barna. Hann hlustaði á sjúkrasöguna og kom með alls konar mögulega sjúkdómsgreiningar sem ég einfaldlega man ekki lengur, enda mikið af upplýsingum að innbyrða á stuttum tíma. Það fyrsta sem Lúther gerði var að senda Bríeti í röntgen og láta okkur gefa henni sojamjólk í stað venjulegrar þurrmjólkur, auk þess sem ég átti að taka út allar kúamjólkurafurðir úr mínu fæði. Röntgenmyndatakan átti að leiða í ljós hvort um einhvern viðsnúning væri að ræða og sojamjólkurfæðið til þess hvort um kúamjólkurpróteinóþol (langt orð!) væri að ræða. Hið síðara reyndist upp á teningnum og Bríet varð fljótlega örlítið skárri, og mikið skárri eftir að brjóstamjólkin var alfarið tekin út. Það gerðist fyrir 3 dögum.

Þetta er alls ekkert stórmál og óþolið á að brá af henni um 1 árs aldur. Þangað til fær hún sojamjólk að drekka og má ekki fá neinar kúamjólkurafurðir. Eitt sem er rétt að nefna til að fólk freistist ekki til að gauka að henni ís, skyri, jógúrt, kókómjólk o.s.frv. Kúamjólkurpróteinin valda sárum innan á magaveggnum hennar, og það tekur um 4 til 5 daga fyrir sárin að gróa. Haldið þið að það verði einhver freisting fyrir ykkur að gefa henni ís, vitandi þetta? Sennilega ekki, trúi ég.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home