Veröld Bríetar

25 júní 2006

Bríet varð sjö mánaða í gær....

Bríet yndi varð 7 mánaða í gær og virtist ekkert kippa sér upp við það að mamma og pabbi væru að segja henni tíðindin. Það var stillt upp í myndatöku í morgun en hún þreyttist fljótt og hélt áfram við lestur á DV enda nóg slúður í gangi sem hún gat svo komið áfram til vina sinna á leikteppinu. Helgin hefur verið góð og mikið brallað hérna í hlíðunum. Borðað, drukkið, ropað, sofið, buslað og síðast en ekki síst blaðrað stanlaust. Bríet er farinn að babla út í eitt og einnig er hún farinn að skreppa af leikteppinu út á gólf á stuttum tíma. Veit ekki hvað gerist næst en kannski nær hún í mann ef maður er of lengi að vaska upp eða eitthvað svoleiðis. Stefnan var sett á sund í dag en við skelltum okkur í níræðisafmæli í staðinn. Reyndar svar Bríet í rólegheitum í vagninum á meðan og hlustaði á allskonar mállýskur þar sem þetta var haldið á hóteli hér í bæ. Nú eru einungis 3 dagar í að ég hætti að vinna og komi heim í partíið sem mun standa sleitulaust fram á næsta ár. Hjördís þarf að fara vinna bráðlega þannig að smá breytingar verða á þessu öllu saman og vonandi tekur Bríet þessu með jafnaðargeði og rekur mig ekki í vinnu aftur og platar mömmu heim. Nei það er ekki í stöðunni og við verðum að vera saman og njóta okkar.
Við erum að vonast eftir að geta farið í tjaldferðalag bráðlega og er mikil eftirvænting hjá okkur að sjá hvernig að Bríet líkar það. Hún er nú nokkurveginn hætt með næturpelann þannig að þetta ætti ekki að vera neitt mál. Hún er nú farinn að sofa frá hálf níu til rúmlega sex og svo eru ljósin kveikt klukkan sjö. Hún er alltaf svo glöð þegar að risarnir kveikja ljósin og bjóða henni góðan daginn. Hún skríkti síðast í morgun þegar að ég kveikti. Hún veit nákvæmlega að hún er að fá nýja bleyju, knús og síðast en ekki síst fullan pela af mjólk sem hún fagnar vanalega eftir að vera ekki búinn að fá neinn pela um miðja nótt. Við erum að bæta í matarræði hennar núna og hún er alltaf að fá að smakka eitthvað nýtt. Nú síðast var það spínat úr krukku sem hún virtist fíla til að byrja með en svo kom einhver snúður í hana. Ég reyndi tvisvar að gefa henni þetta um helgina og mér var næstum því hent úr sófanum. Hún bara lokar munninum og neitar að taka við þessu. Maður verður að halda áfram að reyna þar til að hún gefst upp á að rífast við okkur. Svona verður þetta sennilega oft þar sem þau eru líka að reyna að stjórna þessu að einhverju leiti sjálf, eða hvað....

Allavega eru dagarnir að verða skemmtilegri og skemmtilegri þar sem hún er að verða svo mikil manneskja. Alltaf eitthvað nýtt sem maður getur fagnað og skemmt sér yfir. Það er ekkert eins og þetta.

Svo eru það skrækirnir sem hún er að mastera þessa daganna, þeir eru algjör snilld og reyna meira að segja á eyru fyrrverandi trommara sem hélt hann hefði heyrt allt.....

Endilega vera dugleg að skrifa í gestabókina.. Var að laga hana þar sem hún datt út í nokkra daga,, einnig er komin nýr litur á hana, svolítið spennandi....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home