Veröld Bríetar

14 júní 2006

Fréttir af Bríeti




Allt svo gott að frétta af Bríeti. Hún hefur verið dugleg og alltaf er eitthvað nýtt að gerast. Hún er farinn að fara með okkur að versla í matinn á laugardagsmorgnum í Kringluna og virðist fíla það vel. Hún á það til að leggja sig og sofa aðeins í Kringlunni. Hún er farinn að fikta með stútkönnu og einnig farinn að halda aðeins á pelanum sínum. Bríet hefur verið dugleg á teppinu sínu síðustu daga og virðist það vera farið að skila sér í aukinni hreyfigetu. Nú eru bara tvær vikur rúmlega í að ég taki við hérna á heimilinu og yfirgefi vinnustaðinn í langan tíma. Þetta er allt saman dásamlegt..... svo vill ég bæta við að Bríeti finnst æðislegt að fá fólk í heimsókn. Sérstaklega milli 5 og 7 á daginn þegar að hún er í svo miklu stuði....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home