Smá ferðasaga......
Jæja þá ætla ég að reyna að lýsa þessari ferð í fáum orðum þannig að þið haldið ekki að við höfum bara legið í morgunverðarhlaðborði og sofið. Við fórum af stað þann 16. maí með Bríeti út á keflavíkurflugvöll grunlaus um hvernig þetta mundi allt saman ganga. Á flugvellinum hittum við Önnu, Vidda, Steinar og Tómas þar sem þau voru á sömu leið. Í flugvélinni þá fengum við góð sæti þar og flugfólkið skellti vöggu fyrir framan okkur og allt gekk vel. Þetta var lengsta flug sem ég hafði farið í þar sem þetta tók rúmlega 5 tíma. Bríet borðaði, talaði, svaf og skemmti flugþjónum Spanair allan tímann. Spanair er virkilega gott og þægilegt flugfélag verð ég að segja þar sem allir eru svo elskulegir. Kannski er það bara Bríet sem kallar þetta fram hjá starfsfólkinu. Við komum frekar seint upp á hótel og þurftum að drífa litluna í svefn þar sem hún var þreytt þrátt fyrir að hafa sofið í rútunni á leiðinni. Svo rann upp nýr dagur og við fórum að koma okkur fyrir og líta í kringum okkur. Ég verð að segja að þetta hótel er algjör klassi toppur og maður náði ekki einu sinni að skoða allt þarna. Morgunmaturinn þarna var endalaus og einfaldara að segja hvað var ekki á boðstólnum. Þarna var meira segja hægt að fá kampavín og jarðaber á morgnanna þó svo að við Bríet höfum látið það kyrrt liggja.
Bríet var þarna að upplifa mikið nýtt þar sem við höfum ekkert verið að fara með hana í Kringluna eða svoleiðis og allt í einu var fullt af fólki allsstaðar og mikið að gerast. Við fórum með hana út um allt og hún hafði gaman af. Við fórum á veitingastaði og þjónarnir voru alltaf að fikta eitthvað í henni og virtist ekki skipta máli hver átti í hlut. Við reyndum að fylgja rútínu hennar að fullu og það kom fljótlega í ljós að hún var ekki alveg eins til í að sofa langa dúrinn sinn á daginn eins og heima. Þetta varð til þess að hún var oft orðin svo uppgefinn þegar að baðið og nuddið var búið að hún ætlaði varla að geta borðað fyrir svefninn. Ég setti örugglega heimsmet í að syngja um litlu andarungana þarna og Hjörsdís tók þetta tmeð mér í falsettu þannig að Bríet gat ekki annað en opnað augun til að reyna að skilja hvernig hægt sé að syngja svona illa.
Við leigðum bílaleigubíl í einn dag með Önnu og Co og skelltum okkur í höfuðborg Lanzarote ásamt því að fara í risa verslun. Það gekk allt vel en litlan var samt þreytt eftir túrinn. Svo liðu dagarnir og við náðum að liggja smá í sólinni en sundlaugargarðurinn var frábær þarna. Maður fékk handklæði og gat legið slakur þar sem verðir voru á staðnum, við litum samt ekki af litlu þar sem maður má ekki gera það. Á hótelinu er hægt að fara í nudd og svoleiðis og nýttum við okkur það. Svo var spilað á kvöldin og horft á þær fáu stöðvar sem voru á ensku. Það var rætt um það að gaman væri að fara þarna árlega þar sem þetta er allt svo þægilegt og börnin hafa endalaust gaman af þessu. Steinar og Tómas höfðu varla tíma til að borða morgunmatinn þar sem þeir urðu að fara út í sundlaugina fljótt. Viddi var duglegur að drífa allt liðið í tennis og lét ég verða að því að prufa það. Ég náði að týna einum bolta og þurfti aðeins að klifra til að ná í nokkra. Ég er ekki alslakur í þessu en það verður að telja með að frekar vindasamt er þarna. Anna og Viddi pössuðu eitt kvöldið þar sem ég átti afmæli og fórum við á ítalskan veitingastað til að borða og spjalla. Það endaði þó í málæði þjóns frá Urugvæ sem sagði okkur allt sem hugsanlega er hægt að vita um þetta land, við vorum ekki að losna frá þessu og sem betur fer vorum við búinn að sporðrenna mestum matnum þegar að ræpan byrjaði.
Bríet tók af okkar mati mikið þroskastökk þarna og er það sennilega vegna þess að það var alltaf eitthvað um að vera og við vorum svo dugleg að þeytast um með hana. Við reyndum að framlengja um viku en það er svo mikið að gera í vinnu hjá mér að það gekk ekki upp. Svona í heildina þá var þetta æðislegt og við gátum verið svo mikið saman og Bríet hafði foreldrana í vasanum þarna. Ég prófaði líka nýja hluti eins og að syngja og tralla í flugvél (barnalög) einnig blandaði ég kokteila á kvöldin (sojamjólkurduft í vatn) og svo svona eitt og annað sem kom uppá, jú einnig skipti ég um bleyju í flugvél og verður það að teljast merkilegt að mínu mati.
jæja fleiri sögur seinna, þarf að fara að blanda kokteil hérna.....
Maggi

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home