Veröld Bríetar

05 október 2006

Hjördís á afmæli í dag



Innilega til hamingju með daginn Hjördís og skemmtu þér vel í Köben...

Það sem er að frétta af Bríeti er það að hún er byrjuð á bakflæðismeðferð sem gengur út á að taka eina töflu á dag í einn mánuð og sjá hvað gerist. Einnig er hún byrjuð hjá sjúkraþjálfara sem vill hafa hana einu sinni í viku í smá æfingum, þá aðallega til að styrkja bakið á Bríeti en samkvæmt því sem þjálfarinn sagði þá þurfa börn stundum á svoleiðis æfingum að halda. Ég er ánægður með þetta þar sem þetta er eins og að vera hjá einkaþjálfara einu sinni í viku. Ég er farinn að finna mun á því hvað Bríet er öflugri að borða og er það gott mál. Þetta hefur verið smá átak og verður það sennilega áfram en Bríet er í góðum höndum þar sem hún getur alltaf stokkið til þessara sérfræðinga sem hafa verið að hjálpa henni. Vonandi eru þetta bara tímabils hnökrar hjá henni og kannski hlæjum við rosalega mikið af þessu öllu saman fljótlega en látum brosið duga í bili. Bríet er í okkar huga löngu komin yfir allt fyrirburastúss þó svo að einhverjir vöðvar þurfa smá æfingu, það skiptir engu máli. Mamma Bríetar ætlar að vera í Köben fram á laugardag og við feðginin munum leika á alls oddi þangað til og sennilega lengur.
samantektin er þá þessi að Bríet er í æfingum og brosir að þessu öllu saman, einnig er hún mjög ánægð með að hafa látið pabba sinn breiða yfir sig á tveggja tíma fresti í nótt og lagfæra snudduna, henni finnast baugarnir svo sætir og gerir allt til að laða þá fram hjá pabba sínum.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home