Veröld Bríetar

13 janúar 2007

Bríet komin heim eftir spítalalegu

Hérna er Bríet í rúminu sínu á spítalanum þar sem hún var í einangrun. Bríet fékk para inflúensuvírus og magapest þannig að þetta var ekkert skemmtilegt fyrir litluna. Hún er þó komin heim og núna heldur hún bara áfram á sýklalyfunum sínum heima. Læknirinn sagði hana betur komna heima heldur en á spítalanum þar sem fleiri pestir eru á sveimi. Bríet léttist aðeins í þessum veikindum þannig að við þurfum að vera dugleg að gefa henni að borða og svo ætlar Lúther læknir að hjálpa okkur með að setja smá búst í matarræðið. Ég sagði við hann að mér finndist hún vera orðin létt en hann sagði að það væri ekkert að marka þegar að þau eru að ganga í gegnum svona veikindi og bætti svo við að hún væri flott stelpa, svo sem ekki í fyrsta skipti sem hann segir það um hana Bríeti.....
Hérna er hún glaðlynd að venju og eins og sést þá þurfti að stífa vinstri handlegg þar sem hún var með saltupplausn í æð, einnig fékk hún sýklalyfið þarna í gegn. Á þessum tíma voru læknarnir hættir að pirra hana með að kíkja í eyrun og svoleiðis vitleysu..








Þetta krútt var stundum glöð en einnig gat hún fengið leið á því að hanga inn í þessu herbergi. Aðstaðan er þó fín fyrir foreldra þar sem þarna var sturta í herberginu og svo gat maður horft á sjónvarp og allt sem því fylgir. Það var svefnaðstaða fyrir einn og var sá beddi kannski frekar harður og mér var hugsað til Ikea beddans sem við eigum heima hjá Afa Dóra...






Hérna var búið að koma upp smá leikhorni þar sem krúttið gat blásið út. Það var samt hægara sagt en gert að hreyfa sig með stífðan handlegg en hún lét sig hafa það...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home