Eyrun litlu, pínulitlu
Litla bjútíbarnið okkar fór í röraaðgerð í morgun. Hún stóð sig eins og hetja, en ég brast í grát þegar hún var svæfð, sjálfri mér að óvörum. Vonandi er eyrnabólguævintýrið búið með þessari aðgerð. Eftir aðgerð fórum við heim, borðuðum hádegismat og svo átti prinsessan að fara að sofa inni í rúmi. Nema hvað að hún tók sig til að skellti sér yfir rimlana og lenti á hausnum í hjónarúminu. Sem betur fer var ég uppi í hjónarúminu og allt fór vel - við fengum bara báðar hláturskast yfir þessu. Nú er Maggi að lækka rúmið og þá er spurning hvort það verður samþykkt...

2 Comments:
Gott að þetta gekk vel! Er þetta ekki bara orðið ágætt í bili? Já það er ótrúlegt hvað manni finnst erfitt að horfa á þau litlu svona varnarlaus í svæfingu. Ég man að ég grét þegar Mikael Máni var svæfður á sama aldri. Kv GDC
Hæ hæ, það var þetta með hvort þetta sé ekki að verða gott í bili :)
Vona að þið hafið það gott í 101...
M
Skrifa ummæli
<< Home