Veröld Bríetar

09 mars 2007

Veika barnið

Bríet er orðin veik aftur. Kvefstíflan ofan í henni hefur smám saman versnað og breyst í hósta sem stendur yfir alla nóttina. Í gær var hún komin með hita. Við ákváðum að fara með hana til læknis fyrr en seinna í þetta skiptið og fórum með hana á barnalæknavaktina í Domus Medica áðan. Sem betur fer. Hún er núna komin á ofurskammt af Augmentin, komin aftur á pústið og það ofurskammta yfir helgina og fyrirmæli um púst fram á vor, og svo eyrnadropa. Á fimmtudaginn verður staðan tekin og Bríet röntgenmynduð, að því gefnu að hún versni ekki þangað til. Guðmundur læknir sagði að ef við svo mikið sem hugsuðum hvort við ættum að fara með hana á bráðavaktina að drífa okkur med det samme.

Eins og þið vitið hafa þessi veikindi staðið yfir síðan 19. desember, en Bríet fór ekki á nein lyf fyrr en um miðjan janúar. Í desember og byrjun janúar létum við þrisvar kíkja á hana og í öll skiptin var mat heilsugæslulæknanna sem skoðuðu hana að sjá til og reyna að láta hana komast yfir þetta sjálfa. Nú er það hins vegar orðið álitaefni hvort hún hafi byrjað að þróa með sér asma í desember og hann sé að valda þessum endurteknu lungnabólgum og veikindum öllum. Sem er óþægilegt til að hugsa og innlegg í umræðuna um ofnotkun á sýklalyfjum. Því kannski hefði Bríet ekki lent í öllum þessum ósköpum ef hún hefði farið á lyf í seinna skiptið sem við létum kíkja á hana í desember.

2 Comments:

At 12.3.07, Anonymous Nafnlaus said...

Hej Hjördis,

can you post me your active email-address, so that I can mail you some news?

So long,

Tilman

 
At 12.3.07, Anonymous Nafnlaus said...

hjordis@logos.is

Look very much forward to hearing from you Tilman! And thank you for the card - we didn't send any, but I'll mail you all the news.

H

 

Skrifa ummæli

<< Home