Veröld Bríetar

28 febrúar 2007

Matur

Bríet er í góðum málum, hress og ánægð með lífið, kannski af því að hún er enn á pensillíni. Síðasti dagur á pensillíni er í dag og það kemur því í ljós á föstudag/laugardag hvernig staðan er. Hún hefur alltaf veikst aftur eftir hvern pensillínskammt, alveg frá því að hún veiktist fyrst 19. desember.

En alla vega. Fréttir dagsins eru þær að Bríet borðaði á við tvo í hádeginu. Og þeir sem þekkja til vita að það eru stórfréttir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home