Veröld Bríetar

15 febrúar 2007

Bríet og kvefið

Bríet greyið hefur verið veik núna síðustu daga. Hún náði sér í eitthvað sem býr til þennan skemmtilega hósta og hita. Greyið litla er búinn að æla mikið síðustu kvöld og þvottavélin í mávahlíðinni hefur snúist allsvaðalega. Já það kom líka ælapesti á dagheimilið þannig að þegar ég hringdi í dagmömmuna til að láta vita af forföllum Bríetar þá var aðeins eitt af 10 börnum sem mættu þann daginn.





Hérna sést Bríet í dag þar sem hún varð að koma með í þvottahúsið þar sem Snorkstelpan átti að mæta úr þvottavélinni um þetta leyti. Það stemmdi alveg og hún fór beint á snúruna enda ansi blaut greyið... Hún var þó fljót að ná sér og er með Bríeti í draumalandinu núna.








Hérna sést snokstelpan alsátt með klemmu í eyranu.

Annars fékk Bríet DVD með Múmínálfunum um daginn og virtist fíla fyrstu mínúturnar.. Svo stoppaði hún að leika sér í gær þegar stubbarnir voru í sjónvarpinu en hún gerði það líka þegar Jack White í White Stripes söng Joline í sjónvarpinu.. veit ekki hvort hún fílaði betur...










Hérna er ein mynd frá því um daginn þegar Bríet fékk heimsókn frá afa sínum Magnúsi.

Annars er stelpan nú með smá hita en það er þannig þegar hún er aum í hálsinum eða er að hósta þá á hún það til að æla mikið og getur ekki borðað hvað sem er. Hún hefur þó náð að drekka og borða aðeins þannig að þetta er ekki eins og um daginn þegar hún sjálf vildi heldur ekki drekka og borða. Hún hefur tekið daglúrana í fanginu á foreldrum sínum í stofunni og virðist hafa fílað það vel. Svona er þetta allt saman og vonandi kemst hún fljótlega að hitta vini sína í Skipasundinu.. Það er ekkert gaman að hanga heima alla daga eins og eitthvað smábarn.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home