Ekki sagan öll
Jæja, nú er Bríet heima með pabba sínum eftir þriðju spítalaferðina frá því að hún vaknaði í gærmorgun. Þá vaknaði skvísan eftir frekar erfiða nótt með blóðtauminn rennandi úr vinstra eyra - við upp á HNE í skoðun. Allt í orden sagði læknirinn og skrifaði upp á eyrnadropa. Seinni partinn var stúlkan komin með háan hita og HNE sendi okkur upp á bráðamóttöku barna. Þar fannst ekkert sérstakt að og við vorum send heim og áttum að koma aftur í dag í endurmat ef hún væri enn með hita. Í morgun var farið að blæða úr báðum eyrum og hitinn orðinn enn hærri og við fórum upp á bráðamóttöku aftur. Þar voru tekin allsskyns sýni sem á eftir að koma út úr, en HNE læknir sem kíkti á hana þar sagði hana með bullandi sýkingu á báðum eyrum og setti hana á sterkan skammt af sýklalyfjum, enn og aftur. Það fer þá að verða rúmlega mánuður sem hún á sýklalyfjum, og rúmlega 7 vikur liðnar frá því að hún veiktist fyrst. Annars stóð sjúklingurinn upp í fyrsta skipti í gær - og skellti sér svo beint á hausinn...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home