
Gaman að fá kveðju frá Rósu í París og einnig frá Gunnu og félögum í 101, já vonandi hittumst við á labbinu fjótlega. Bríet var hitalaus í dag og við fórum með hana í Kringluna. Bríet á frekar erfitt með að taka daglúrinn sinn nema í vagninum og að þeim sökum urðum við að fara með vagninn þar sem við gátum trítlað með hann inni og auðvitað varð Kringlan fyrir valinu og viti menn, Bríet svaf í 3 tíma í Kringlunni. Hvað gerðum við á meðan, jú við versluðum í matinn og litum í kringum okkur í búðum og settumst svo niður í kaffi. Bríet stóð upp tvisvar í rúminu sínu þegar við vorum að reyna svæfa hana í dag og við klöppuðum fyrir henni, hún er búin að vera ótrúlega dugleg í gær og í dag. Í gær var svo mikill galsi í henni um miðjan dag að hún endaði á þvi að sofna í fanginu mínu sökum þess að ef ég lagði hana í rúmið þá þurfti hún að sýna allt sem hún kann.... Nú vonar maður að hún jafni sig aðeins og geti farið að leika við félaga sína hjá dagmömmunni.. og við getum farið að vinna...... þessi elska er algjör snillingur...
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home