Veikindin hennar Bríetar....

Bríet var frekar veik í nótt og þurftum við að kæla hana niður með köldum þvottapoka. Hún náði þó að hvílast ágætlega og var með 39,1 gráðu í morgun og því skárri en í gær. Það var meira hitamók sem einkenndi hana í gær. Á þessari mynd má sjá að gott er að hafa það sem manni þykir kærast nálægt sér þegar maður er slappur, snorkstelpan og litla hugguteppið eru því aldrei langt undan.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home