Veröld Bríetar

08 september 2007

Mamma á ferðalagi

Nú er Hjördís í Köben að lika sér með vinkonum sínum og sennilega er mikið fjör hjá þeim. Bríet er bara heima með pabba sínum og það vantar svo sem ekki fjörið hérna heldur. Þessar myndir voru teknar á Logos um daginn þegar að við kíktum í heimsókn. Hjördís fór í gegnum helstu hlutina þarna og Bríet virtist vera með allt á hreinu þegar við komum út í bíl aftur.






Annars hefur verið í mörg horn að líta og höfum við nú selt íbúðina okkar og tók það mjög fljótt af. Bríet hefur verið hjá dagmömmunni og nú er svo komið að því að hún færist upp á næsta plan þar sem aðlögun á leikskóla hefst um miðja næstu viku. Það verður örugglega bæði gaman og erfitt fyrir hana. Ég er þó mjög glaður að hún sé að fara á þetta stig.
Bríet er ekki byrjuð að labba ennþá en hún er í styrktarþjálfun einu sinni í viku og svo bindum við vonir við að leikskólinn hjálpi til þar sem þau eru með tengingu við styrktarþjálfunina síðast þegar við vissum. Maður veit að vísu ekki hvernig staðan er þegar að ekki fæst fólkt til að vinna þessi störf.
Um helgina ætlum við að vera dugleg og reyna að heimsækja eitthvað fólk og þessháttar. Kannski verðum við bara löt og sjálfmiðuð og liggjum bara í ís og nammi og drögum fyrir glugga......
Ætlaði að setja myndir frá síðustu Akureyrarferð en myndavélin fór til útlanda....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home