Veröld Bríetar

05 ágúst 2007

Í dag fórum við......

Ævintýrið heldur áfram og við skelltum okkur aftur austur fyrir fjall. Við byrjuðum í sundi á Selfossi í morgun og fengum okkur svo að borða á Hótel Selfossi. Við keyrðum svo á fullu á Flúðir þar sem við hittum Kristínu Lindu, Ara og krakka... Þau fóru á leiksýningu og við settum Bríeti til svefns í vagninn og fórum á kaffihús og lásum blöðin... Svo sáum við furðubátakeppni og skelltum svo í okkur veigum hjá fjölskyldunni á Grafarbakka......

Á þessari mynd erum við að fara yfir tún til að stytta okkur leið, Bríet hafði gaman af þessu en skyldi ekki hvers vegna ekki var búið að slá....


Hérna er Bríet að skoða fjórhjól og virtist fíla það vel, við þorðum þó ekki að leyfa henni að aka af stað....










Eftir kaffið og teið þá skelltum við okkur af stað og ætluðum að snæða kvöldverð í Sólheimum í Grímsnesi en það var búið að loka fyrir veitingar í dag, við skoðuðum okkur um og veðrið var rosalega gott þarna. Hitinn var rétt undir 20 gráðum...

Bríet er þarna að tromma meðan að mamma hennar fer í gegnum flókann....







Þessi mynd er eitthvað svo yndisleg..

Við ókum svo frá Sólheimum niður í Þrastarlund og snæddum kvöldmat, við vorum svo komin heim rétt fyrir klukkan 9..

Dagurinn var snilld og allir sáttir nema hvað við höldum að Bríet sé með í maganum eftir að hafa sleppt sér í rúsínuáti á heimleið... það er svo gaman að horfa á Múmínálfana og gúffa í sig rúsínur og fleira....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home