Veröld Bríetar

06 júní 2007

Ferð á Hótel Heklu

Það var aldeilis stuð á fjölskyldunni um helgina þar sem við fórum á Hótel Heklu og gistum eina nótt. Þetta var fjölskylduferð Logos og fullt af krökkum og mikið stuð.
Hérna sést Bríet vera skoða hvolp sem var þarna. Þetta var stórmerkilegt greinlega.



Það má sjá á svipnum að allir þessir krakkar og allt þetta fólk í ferðinni komu Bríeti í hið besta skap, sem hún reyndar er yfirleitt í....







Hérna eru svo mæðgurnar úti þar sem Logosleikarnir voru haldnir. Bríet var að sjálfssögðu með og hjálpaði liði sínu með því að hvetja....

Þetta var í alla staði frábær ferð og Bríet hafði gaman af.

Bríet er reyndar heima með smá hitaskot og vonum við að það gangi fljótt yfir. Kannski vill hún vera heima til að fylgjast með að iðnaðarmennirnir haldi sér að verki. Hún er allavega ekki smeyk við þá þegar þeir eru að vappa hérna út um allt... Brosir bara og hlær..

1 Comments:

At 17.6.07, Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir said...

Flottar mæðgur. Verðum svo að fara að heyrast á skype-inu.

 

Skrifa ummæli

<< Home