Kíkt á risessuna
Skelltum okkur af stað í morgun til að kíkja á stelpuna stóru. Bríet var samt ekkert yfir sig hrifin og safnaði fljótlega í kerrunni sinni.
Það verður að segjast að þetta var alveg magnað að sjá með berum augum. Allar hreyfingar svo eðlilegar og þetta mikið sjónarspil. Það var reyndar skítkalt í miðbænum og við vorum í jöklafatnaði...
Svo var Bríet aldeilis hress og vinkaði bara út um allt...
Ekki gátum við tekið þennan strætó þannig að við löbbuðum bara eins og venjulega....

2 Comments:
Gaman hjá ykkur greinilega að skoða Risessuna;) Ætlar familían eitthvað að leggjast í utanlandsferðir í sumar? Bara spá hvort þið séuð á leiðinni aftur til kanarí:) Annars allt gott að frétta úr sveitinni, allir sprækir og glaðir. Verðið nú að láta sjá ykkur ef þið komið norður...Biðjum að heilsa. Kv.D+K+BH+KL
Jú það er eitthvað verið að spá í frí, þetta er oft erfitt að ákveða á þessu heimili eins og þið kannski hafið orðið vitni af :)
Við munum ekki klikka á því að líta á ykkur þegar við komum norður næst. Við erum samt ekki alveg með það á hreinu hvenær það verður......
Maður þarf bara að fara taka upp símann, þetta gengur ekki.
Vona að þið hafið það gott í Túninu.. M.H.B
Skrifa ummæli
<< Home