Fréttir af Bríeti
Hjördís fór með Bríeti á spítalann í dag. Halldóra læknir vildi að hún færi í aðra blóðprufu vegna hvítu blóðkornana. Bríet var með 40 stiga hita í gær og í nótt og var svo pínu spræk í morgun. Svo fór hitinn að rísa aftur þannig að heimsókn á spítalann var óumflýjanleg. Bríet fékk því legg í hausinn og blóðprufa send af stað. Hún fór einnig í lungnamyndatöku sem kom vel út þar sem ekkert óeðlilegt sást. Svo komu þær góðu fréttir að gildið í blóðinu var komið í 1,8 sem er mikið miðað við að það hafði verið í 1,0 í gær. Bríet fór því heim og fékk kvöldmat og fór að sofa. Hún verður svo á flemoxin áfram og vonandi fer henni að batna. Allavega allt þokkalegt að frétta klukkan 23:00 í hlíðunum... vonum það besta.
Ef smellt er HÉR þá ætti að vera hægt að sjá stuttan myndbút þar sem Bríet kennir hvernig á að drekka svala og einnig hvernig maður á að láta heyra í sér þegar að einn sopi er tekinn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home