Bríet er heima
Já það fór í aðra spítalaferð og þessi sú lengsta hingað til. Byrjaði í ælu og niðurgangspest, svo var gildi hvítra blóðkorna (neutropenia) komið niður í 0,3 sem er mjög lágt og hún því viðkvæm fyrir því að fá aðrar pestir og þvíumlíkt. Hún var því í einangrun og gildið fór í 0,6 og svo aftur í 0,3 svo var það 0,4 í dag þegar þurfti að gera páskahreingerningu á spítalanum. Við eru ekki alveg útskrifuð en förum í blóðprufu á laugardag til að sjá hvort að þetta hafi ekki risið...
Bríet fór á kostum og heillaði starfsfólkið þarna upp úr skónum, hún brosti bara þegar verið var að gera hitt og þetta við hana undir restina. Deildarlæknir sagðist aldrei hafa litið í eyrun á svo geðgóðu barni um ævina.
Ef einhver hefur séð stubbaþáttinn þar sem jólatréið birtist á hæðinni þá er ég til í málþing þar sem Bríet horfði á þennan þá 5 sinnum á dag. Ég var að verða slatta stubbasúr þarna inni en merkilegt hversu vel gert sjónvarpsefni þetta er þar sem Bríet var alveg dolfallinn yfir þessu.Meiri sögur af sjúkrahúsi seinna (kannski)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home