Veröld Bríetar

12 mars 2007

Örfréttir

Enduðum á með dömuna á spítalanum um helgina. Hún var send í röntgen og reyndist vera með byrjandi lungnabólgu. Fékk sterkt sýklalyf í vöðva og það virðist hafa reddað málunum. Amk. hóstaði hún ekkert í nótt. Annars fékk hún Jónas litla Franklín (3 ára) í heimsókn til sín í gær. Var eins og við var að búast afskaplega upptekin af honum, og leit varla af honum allan tímann sem hann var í heimsókn. Reyndi svona aðeins að dangla í hann og taka af honum gleraugun, og gapti svo af undrun þegar það var ekki samþykkt þegjandi og hljóðalaust. Og smellti svo bara í góm.

1 Comments:

At 15.3.07, Anonymous Nafnlaus said...

Kæru foreldrar. Veikindi Bríetar hafa vafalaust kennt ykkur það sem flestir foreldrar læra fyrr eða síðar. Það gilda ákveðnar samskiptareglur við lækna viljirðu að eitthvað raunhæft sé gert fyrir barnið þitt (ekki bara "sjá til", svo slatti af "pencilínkúrum" og svo kannski að athuga málið). LJÚGA, LJÚGA OG AFTUR LJÚGA, t.d. þrefalda allt. Viku veikindi verða þriggja vikna veikindi o.s.fr.v. Smáhósti verður frekar þurr og ljótur, minni háttar nefrennsli verður svona heldur þrálátt o.fl. Þegar flest börn fara til læknis eru foreldrarnir nefnilega BÚNIR að ganga í gegnum það að bíða og sjá til. Baráttukveðjur, Harpa systir.
P.s. Hjödda, hvernig er lungnabólgan?

 

Skrifa ummæli

<< Home