Gaman heima
Hérna er Bríet í dótakassanum sínum sem hún vanalega fær skammtað úr. Hún laumaðist meðfram sófa og borðs og náði að láta til sín taka.Það er því tífalldur dagskammtur af leikföngum um allt stofugólf, þetta er snilld.....
Þegar ég lét heyra í mér var hausinn tekinn úr kassanum og brosað....
Svo kom bara brandari með Glitnishúfuna..Hún er alveg rosalega hress og mikill grallari í þessari inniveru, hún saknar greinilega félaga sinna og reynir því að láta sem mest ganga á hérna heima. Hún eltir mann á röndum og vill komast í alla skápa og skúffur, að sjálfssögðu.....
Förum í næstu blóðprufu á morgun en gildið var síðast í 0,9 svo þetta er allt á uppleið....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home