Veröld Bríetar

09 apríl 2007

Fréttir

Hérna er Bríet í rúminu sínu að fylgjast með pabba sínum setja hrein rúmföt á hjónarúmið... Hún er alltaf að stækka þessi dúlla.











Hérna eru mæðgurnar að fara í bíltúr á spítalann. Bríet fór í blóðprufu þar sem verið er að fylgjast með henni. Hún á að fara í aðra blóðprufu á morgun og vonumst við til þess að gildi hvítu blóðkornanna hafi hækkað meira. Enn sem komið er er hún í raun ekki útskrifuð þó svo að við séum með hana heima. Þetta tekur þó vonandi fljótt af sökum þess að hún saknar sennilega vina sinna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home