Nýju skórnir..
Hérna er mynd af Bríeti þar sem hún var að verða tilbúin í fyrir svefn. Við settum hana í bað á spítalanum og fengum til þess allar græjur. Þetta bað var kærkomið þar sem hún komst ekki í bað á hverjum degi.Bjútí smjútí...
Bríet fékk svo Ecco skó í dag og þurfti að prufukeyra þá. Hún er nokkuð dugleg að æfa sig að standa upp og vonandi fer hún að labba sem fyrst, þetta tekur þó allaf smá tíma.Hún hefur verið hress í dag og leikið við hvern fingur. Linda frænka hennar kíkti í heimsókn og þótti Bríet það ekki leiðinlegt.
Þegar maður er duglegur er gott að fá smá knús frá mömmu sinni, vonandi verður líðanin bara góð áfram og svo förum við í blóðprufu upp á Hringbraut á laugardag en þangað til er heill dagur til að ærslast og grallarast......

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home