Hver er eiginlega Mamma?
HÉRNA er stuttur bútur þar sem Bríet bendir og segir mamma, hún er reyndar að benda á skjáinn á vélinni sem sýnir hana í speglinum. Stundum vill Bríet vera mamma og stundum er pabbi mamma en mamma er alltaf mamma.. Merkilegt þetta með mömmu...

2 Comments:
Kæru vinir!!
Það er svo sannarlega verið að reyna ykkur í foreldrahlutverkinu þessa mánuðina. Þið standið ykkur nú mjög vel. Ég kíki alltaf reglulega hingað á ykkur þó ég gleymi nú iðulega að kvitta fyrir mig. Hugsa til ykkar og vona að hvítu blóðkornin fari nú að stíga all hressilega upp á við og Bríet fái nú að njóta vorsins án hósta,hita og kvefs. Vonandi hittumst við svo á gangi úti í 101 kv Gunna Dóra
ps það biðja allir að heilsa héðan
Takk fyrir kveðjurnar Gunna og vonandi hittumst við öll hress á 101 fljótlega..
Maggi og fjölskylda
Skrifa ummæli
<< Home