Veröld Bríetar

17 maí 2007

Uppstigningadagur 17. Maí

Það var kátt á hjalla í dag og fóru allir snemma á fætur eins og venjulega. Þessi svipur sem við fáum að sjá þarna á Bríet er vel við hæfi þar sem hún sýndi mikla grallaratakta í dag....










Svo varð að smella einni af okkur saman... Vantar ekkert upp á gleðina enda var verið að fá sér að borða með tilheyrandi látum.......











Svo var óvænt matarboð og Rakel, Anna Karen, Viðar og Tómas mættu öll og skemmtum við okkur mjög vel. Bríet fór rólega af stað en svo var allt komið á fullt og frænkur hennar og frændi skemmtu henni mikið...









Bríet náði að drekka pelann sinn fyrir svefninn um leið og hún fékk að skoða skemmtilega skartgripi.

Þetta var rosalegt fjör....

2 Comments:

At 19.5.07, Blogger imyndum said...

Kæra Bríet, gaman að sjá þig svona fríska og fallega. Það er nú ekki að sjá á þér heldur hvað þú ert búin að eiga litríkan vetur, bollukinnar og breitt bros. Bestu kveðjur með framhaldið,bið kærlega að heilsa foreldrum þínum að vanda
Rósa.

 
At 30.5.07, Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert bara fallegust á nærmyndinni með pabba þínum.

AK

 

Skrifa ummæli

<< Home