Bríet er heima....
Bríet er búin að vera heima í 2 daga þar sem hún fékk hita. Hún er sennilega með hita vegna tanntöku þar sem jaxlarnir eru að keppast um að komast í notkun....Skoppa og Skrýtla hafa verið Bríetar bestu vinir í þessu ástandi og 8 tommu widescreen ferðadvd er alveg að hitta í mark..... Það má varla kalla á hana og trufla við áhorfið...
Stundum tekur hún pásu og tékkar á bílnum sínum og öðrum leikföngum. Einnig hafa farandverkamennirnir fyrir utan húsið slegið í gegn þar sem þeir kunna að búa til ótrúlegan hávaða í langan tíma.....
Svo er líka gott að slaka aðeins hjá pabba þess á milli.. Bríet er búin að vera hitalaus í dag þannig að hún fer sennilega að hitta krakkana á morgun, hún hefur ekki séð þá síðan á föstudaginn....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home