Veröld Bríetar

06 febrúar 2008

Öskudagur - allt brjálað á leikskólanum

Öskudagur í dag og þar af leiðandi allt crazy. Bríet fór í búninginn sinn í morgun og horfði á stubbana eins og venjulega eftir morgunmat, nauðsynlegt að stubba sig aðeins upp fyrir leikskólann, ég er reyndar viss um að krakkarnir ræða um þátt dagssins eins og eldri kynslóðir ræða um Aðþrengdar eiginkonur, Neigbours og allar þær sápur.













Mamma Bríetar ákvað að taka daginn enn fyrr en við og stakk af til Parísar, fékk reyndar að finna fyrir því þegar kom í ljós að leigubílstjórar voru í verkfalli og hún sat í einum svoleiðis í laaaangan tíma. Jæja Bríet fór á leikskólann og allir voru í búningum og greinilega mikið fjör framundan, ég var fljótur að koma mér í burtu þar sem ég var ekki í búning.






Þau fengu víst nammi og nér var sagt að Bríet hefði verið eins og ryksuga, hún gúffaði í sig nóakropp. Það var svo kropp í poka sem hún mátti taka með sér heim og auðvitað var það klárað í bílnum á leiðinni heim. Ég er að vona að hún fái ekki í magann en ég gaf henni vel af kjötsúpu til að jafna þetta út. Hún er nú sofandi þessi engill og alsátt með daginn. Spurning í hvaða hlutverk hún bregður sér að ári..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home