Blessuð börnin
Bríet var lasin í gær og í fyrradag. Eftir hádegi í gær var hún heima með mömmu sinni, eldhress þrátt fyrir nokkrar kommur af hita. Og svo komu nokkur gullkorn.
Um það bil sem hún var að klára hádegismatinn sinn: "Mamma! Ég er fárveik og borða ekki matinn minn!"
Nokkru seinna um daginn poppuðu mamma og Bríet, og Bríet var himinlifandi með það uppátæki. Bríet fékk sér popp að smakka og sagði "mmm, mjög gott". Ef nokkrar lúkur leit Bríet svo á mömmu sína og sagði: "Mamma! Góður poppur!"
Og svo týndi hún teygjunni sinni. Mamma og Bríet leituðu út um allt og svo spurði Bríet: "Mamma, hvar er teygjan mín?" Mamma sagði þá: "Hún hlýtur að vera einhvers staðar". Bríet leit undrandi á mömmu og sagði svo: "Mamma! Hvar er einhvers staðar?"

1 Comments:
Ahahhahhaah við erum búin að grenja úr hlátri yfir þessum gullmolum.
Meira svona á síðuna :)
Kv. úr Fjallalindinni
Skrifa ummæli
<< Home