Veröld Bríetar

21 febrúar 2006

Lífið í Mávahlíðinni

Jæja, það er langt síðan við blogguðum síðast.

Á föstudaginn síðata var Klemma litla mæld á alla kanta. Hún reyndist vera 4.260 grömm, 53,7 cm að lengd, og höfuðummál var 39,5 cm. Næsta föstudag verður hún 3ja mánaða í raunaldri og þá eigum við að fara að gefa henni graut. Mig óir svolítið við því, enda byrja börn sem fæðast eftir fulla meðgöngu ekki að borða graut fyrr en 4ja mánaða.

Fólk hefur verið að spyrja um ónæmiskerfið hennar og fleira því tengt, og hvort eitthvað sé breytt í þeim efnum. "Umgengnisreglurnar" munu í sjálfu sér ekkert breytast fyrr en allar pestir eru hættar að ganga í vor. Leikskólabörn verða áfram óvinir númer eitt, sem og fólk með sýkingar eins og hálsbólgu og kvef (skiptir engu þó aðeins sé um nefrennsli að ræða eða leyfar af veikindum). Og allir þurfa að þvo sér um hendurnar sem koma inn á heimilið. Markmiðið er að fresta fyrsta kvefinu hennar fram á næsta vetur. Við förum hins vegar með hana nánast hvert sem er. Ég veit þó ekki hvernig verður með heimsóknir á vinnustaðina okkar - svolítið skrýtið að fara með hana í sýningartúr og banna fólki að snerta hana án handþvottar. Er ekki alveg viss um að allir sýni því skilning að hún er viðkvæmari en önnur börn... Hmm.... Sjáum til.

Brio kerruvagninn reynist vel. Ég og Klemma þrömmum um allan bæinn, nokkurn veginn daglega, rúmlega 2 tíma í senn. Ég er ekki með gæru í vagninum eða kerrupoka og vil ekkert svoleiðis ofan í burðarrúmið. Sængin frá tengdó dugar fínt og góði útigallinn frá D&K&B.

Jæja, best að fara ná í barnið. Drekkutími og svoleiðis!

Chao,
Hjördís

1 Comments:

At 24.2.06, Blogger Hjordis said...

Halló Ísak og Áróra!

En gaman að fá kveðju frá ykkur. Mér finnst voða vænt um að þið fylgist með því hvernig mér gengur að stækka og svoleiðis. Í kvöld fæ ég graut í fyrsta skipti og kannski tek ég rosalegan vaxtarkipp í kjölfarið. Hlakka til að sjá ykkur, ykkar vinkona Klementína.

 

Skrifa ummæli

<< Home