Veröld Bríetar

26 júní 2006

Jabb og jæja

Ætli það sé best að ég skrifi stuttan pistil um lífið hjá okkur mæðgunum. Nú er síðasta vika fæðingarorlofsins míns runnin upp og sú fyrsta í fæðingarorlofi Magga. Hann tekur formlega við embættinu Aðalumönnunaðili grallarans á fimmtudaginn, kl. 7 árdegis. Hvet ykkur til að hlusta eftir lúðrablæstrinu sem mun berast úr Öskjuhlíðinni. Ég fer svo að vinna á mánudag, þannig að við fáum 4 daga öll saman, sem eflaust verða nýttir í eitthvað þrælskemmtilegt.

Það er mikið að gerast í lífi Bríetar þessa dagana. Ég sé stærðar- og þroskamun á nokkurra daga fresti. Fyrir rúmlega viku var hún að velta sér á magann í fyrsta skipti (vill ekki velta sér til baka, finnst betra að æpa þangað til mamma veltir henni til baka...) og í hádeginu í dag sat hún í fyrsta skipti með púða í kringum sig. Voða fyndið að horfa á hana, sitjandi í makindum sínum að skoða bók (n.b. að sögnin að skoða útleggst m.a. sem að sleikja á þessum aldri).

Þó Bríet hafi orðið 7 mánaða á laugardaginn verður hún samt líka 6 mánaða næsta fimmtudag. Hún á nefnilega tvo afmælisdaga fyrsta árið. Þroskinn hefur þó alla tíð verið góður. Hún ber nefnilega engin fyrirbura/léttburamerki, fyrir utan lengd og þyngd, og hefur verið í miðjunni í meðaltalinu með öll þroskaskref fyrir utan veltinginn - hún fór í síðasta ferninginn með það afrek. Þetta er mjög gott því við merkjum við í bókina hennar út frá raunaldri en ekki leiðréttum aldri.

Hún er ekki komin með tönn og virðist ekki klæja neitt í góminn. Hún er reyndar alltaf með hvað sem hendi er næst uppi í sér þannig að það er erfitt að fullyrða eitthvað um þessi mál. Henni finnst perumauk best í heimi en þar til fyrir skemmstu trónaði hafragrautur með gulrótarmauki langefst á toppnum. Hún ælir ennþá mikið, en bara eins og mörg önnur börn og lífið er allt annað fyrir hana eftir að hún fór á sojamjólk. Ermar eru það leiðinlegasta og ömurlegasta í heimi og hún gefst aldrei upp á að kvarta yfir því að vera klædd í þessar hryllilegu ermar sem á öllu eru. Svo finnst henni hundleiðinlegt þegar pabbi hennar tekur hana upp úr baðinu og hún fær ekki lengur að leika sér að öndinni sinni. Skemmtilegast er, að sjálfsögðu, að leika sér. Helst vill hún liggja á leikteppinu sínu, með leikfangastöngina fyrir ofan sig og slatta af leikföngum í kringum sig. Þá verður allt brjálað. Hún leikur sér endalaust og meira að segja eftir að hún er löggst til hvílu og búin að loka augunum. Hálfundarlegt að sjá hana með lokuð augun að þeyta Múmínsnáðanum sínum um rúmið. Henni finnst gaman að láta syngja fyrir sig (og að syngja og skrækja fyrir aðra) og hún hefur mjög gaman af fólki, helst sem lægstu í loftinu (les. krakkar). Við verðum helst að fara eitthvað með hana á hverjum degi til að sjá fólk eða skoða eitthvað í umhverfinu, annars getur hún orðið pínu leið. Hún er glaðlynd grallari og athugul á umhverfið. Hún er afskaplega upptekin af mér, eins og hún verður sjálfsagt af pabba sínum þegar hann hefur verið nokkra daga í Embættinu. Hún er akkúrat manneskja og það þýðir ekkert að rugla með dagskránna hennar... Og nú er hún að vakna. Bless...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home