Umskiptin
Bríet var lengi að bíða eftir því að mamma sín og pabbi mundu hætta að grínast í morgun. Mamma fór af stað í fínu vinnufötin og pabbi sat eftir í rúminu og gaf pelann. Svo yfirgaf mamma svæðið og pabbi var eftir með bros á vör. Það er semsagt allt farið í rugl í heimi Bríetar. Ég verð að segja að ég þurfti að klípa mig í dag til að átta mig á því að ég verð með dömuna næstu 6 mánuði og get brallað með henni allan daginn og þarf ekkert að vinna. Þetta er hellingsvinna en Bríet er ekkert að fara fram á að ég lagi reikninga fyrir hana eða komi tíu fletum af byggingakrönum í garðinn eftir hádegi. Hún vill bara vera í þægilegum fötum, fá að borða með reglulegu millibili, vera færð úr stað reglulega og fá góða tónlist í eyrun. Svo vill hún fara í bíltúr og hitta fólk og elskar að sofna í Hagkaup í Kringlunni. Það er sennilega svo vel raðað í hillurnar að hún þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu, veit það þó að á þessum tíma að ári liðnu þá verður hún farin að setja út á uppröðunina þarna og leggur sig fram um að laga allt til.
Í dag gengum við saman inn í fasmótaða rútinu sem að Hjördís er búinn að koma á og ég held að þetta hafi gengið ágætlega. Hjördís var að vinna fam eftir degi og var alsátt með þetta allt saman þó svo að hún vildi örugglega taka 6 mánuði í viðbót. Við skelltum okkur á Laugaveginn og Bríet svaf bara vel innan um allt fólkið og gauraganginn. Nú er verkefnið þessa vikuna að finna besta Lattebollann á Laugarveginum, ef einhver veit hvar hann er að finna þá má alveg benda mér á það svo að ég sé ekki að sóa tímanum í eitthvað rugl Latte. Bríet var eitthvað uppgefinn eftir þessi skipti og sofnaði þegar að Hjördís var að gefa henni kvöldgjöfina, kannski hefur Hjördís nuddað hana svona vel að hún hefur ekki haldið þetta út.
Ég ætla að reyna vera duglegur að segja frá ævintýrum okkar hérna á blogginu hennar Bríetar........
Svo var það Akureyrarferðin sem var algjör snilld.. en það verður að fara í annan pistil þar sem myndir fylgja með..

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home