Akureyri
Bríet er víst ekki fyrsta barnið sem situr í þessum stól hjá Afa dóra og horfir á sjónvarpið. Það er víst alveg einstaklega gott að horfa á teiknimyndir í þessum stól og einnig formúluna segir afi Dóri.
Hérna er svo Bríet að fá sér að borða þessi elska...... afar ánægð með sig að vanda.Þessi er mynd er tekin á heimaslóðum..
Hérna er svo róleg morgunstund í Einilundi þar sem afi Dóri er að gefa Bríeti rúsínur, það er alveg ótrúlegt hvað þau ná vel saman. Geta dundað sér út í eitt og Bríet leiðist ekki á því að kalla AFA AFA endalaust...
Svo var farið á leikskóla hjá Lundarskóla og leikið sér aðeins. Þetta var tekið um síðustu helgi þegar við fórum í afmæli til ömmu Höllu...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home