Veröld Bríetar

03 mars 2008

Bríet og félagar

Bríet fékk afa Dóra í heimsókn um daginn og það var mikið fjör. Dóri þurfti að elta hana um allt hús og Bríet hafði svo gaman af þessu. Ég spurði Bríeti í gær hver ætti allan þennan snjó úti og það stóð ekki á svari "Afi Dóri", hann er því vinsamlegast beðin að taka snjóinn með sér. Hérna er Bríet í herberginu hans Afa Dóra...













Það var rosalegt fjör á sunnudaginn, Doddi vinur hennar Bríetar bauð henni í tveggja ára afmælið sitt. Þau eru búin að vera vinir síðan þau voru hjá Ingu dagmömmu og eru rosalegir buddies..... Þau voru svo glöð og Bríeti fannst gaman að heimsækja Dodda og sjá hvernig allt er hjá honum. Það kom í ljós að þau eiga mikið af eins leikföngum og einnig húsgögnum í herberginu sínu. Nú þarf Bríet að bjóða Dodda í heimsókn við fyrsta tækifæri.




Það var svo rosalegur bónus að Tommi frændi hennar Bríetar var með okkur góðan part af sunnudeginum og það er nú bara svoleiðis að Bríet dýrkar frænda sinn, hann var líka afar duglegur að koma með okkur í afmælisveisluna...









Svo voru allar græjur prófaðar, mikið fjör. Það hefur bara gengið vel upp á síðkastið og mikið fjör verið hjá okkur...

Sjáumst......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home