Veröld Bríetar

22 mars 2008

Bríet í Köben

Fjölskyldan er kominn heim eftir 7 daga ævintýraferð í Kaupmannahöfn. Við gistum á hóteli í miðbænum sem leigir út litlar íbúðir. Veðrið var víst svipað og hér heima en við klæddum okkur vel og fengum þónokkuð af sól. Hér erum við á ítölskum veitingastað að snæða.








Bríet var að upplifa margt í fyrsta skipti þarna. Meðal annars þá fór hún í Bíó og sá part af teiknimynd sem var verið að sýna, það má sjá aðalsöguhetjuna á myndinni hér, hann er greinilega að gefa Bríeti blóm.









Hérna erum við á áströlskum veitingastað og það var ekki annað hægt en að vera með sólgleraugun uppi við. Bríet notaði þessi gleraugu óspart í ferðinni.










Hérna er Bríet í Experementarium þar sem börnum og fullorðnum gefst tækifæri á að prófa allskonar tæki og tól, það var mjög gaman að vera þarna og þetta er fyrir börn á öllum aldri. Þetta og dýragarðurinn slógu algjörlega í gegn í þessari ferð.

Fleiri myndir koma bráðlega....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home